Færsluflokkur: Bloggar
28.5.2009 | 13:30
Fimmtudagur
Í dag kláruðum við bókina.
Við gerðum forsíðu, inngang og efnisyfirlit og kláruðum bara.
kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2009 | 09:16
Miðvikudagur
Í dag kláruðum við allar hljómsveitirnar. Við settum allar upplýsingar á blöðin og kláruðum að finna myndir og bæta við. Við byrjuðum að gera mat við hverja hljómsveit. Við ákváðum að klára að meta þær á morgun.
Á morgun ætlum við að klára að meta hljómsveitirnar og gera inngang og efnisyfirlit og ákveða nafn á bókina og gera forsíðu.
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2009 | 13:53
Þriðjudagur
Í dag kláruðum við að vinna úr upplýsingum og fullkláruðum fullt af hljómsveitunum. Við eigum eftir að klára svona 5 hljómsveitir en eigum samt eftir að setja hvað okkur finnst um hljómsveitirnar.
Við ætlum að reyna að klára hljómsveitirnar alveg á mrg og byrja á að setja okkar mat við þær. Við ætlum líka að finna nafn á bókina og gera forsíðuna. Ef við eigum einhver blöð eftir ætlum við mjög líklega að gera inngang og efnisyfirlit.
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2009 | 12:13
Mánudagur
Í dag byrjuðum við almennilega á bókinni. Við prentuðum út eitthvað af myndunum og héldum áfram að vinna úr upplýsingunum. Við erum að klára Queen og ætlum að halda áfram að vinna í Dikta, Three Days Grace og Skillet og allavega klára það í dag. Við ætlum að fara og klára að prenta út myndirnar á eftir og reyna að gera svolítið meira.
Á morgun er það svo bara að halda áfram með þetta sama en þá verðum við komnar með allar myndir. Við ætlum líka að reyna að ákveða nafn á bókina bráðlega og skreyta forsíðuna eitthvað. Ef við eigum einhver blöð afgangs ætlum við að gera efnisyfirlit og inngang í bókina.
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2009 | 14:13
Föstudagur
Í dag byrjuðum við að vinna úr upplýsingunum og kláruðum að finna myndir :)
Við ákváðum að byrja á bókinni á mánudaginn en erum að reyna að ákveða hvort myndirnar verða í svarthvítu eða lit. Við erum líka í smá vandræðum með að ákveða litinn á stöfunum í bókinni.
Á mánudaginn ætlum við alla vega að setja allt upp og finna út hvernig bókin verður. Við þurfum líka að finna nafn.
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2009 | 14:00
Miðvikudagur
Í dag kláruðum við að finna upplýsingar og fundum nokkrar myndir líka við hittum Jón Svan og hann hjálpaði okkur með að flokka hljómsveitirnar í mismunandi rokk hópa xD
Á morgun er frí þannig við gerum ekkert þá en á föstudaginn ætlum við að klára að finna myndir og byrja að vinna úr upplýsingunum og setja þær upp í bókina
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2009 | 12:46
Þriðjudagur
Í dag héldum við áfram að finna upplýsingar en við vorum svo þreyttar að við ætlum frekar að vinna meira í dag og kvöld. Við ætlum að fara að kaupa möppuna einhvern tímann bráðum. Við fórum til Jóns Svans og hann hvatti okkur að halda áfram.
Á morgun ætlum við að reyna að finna einhverjar myndir og byrja að skreyta kartonblöðin og setja upplýsingarnar og fleira á þau.
kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2009 | 13:16
Mánudagur
Í dag fundum við upplýsingar um hljómsveitirnar sem við ætlum að setja í bókina okkar.
Þetta eru hljómsveitirnar:
- Bon Jovi
- Queen
- Aerosmith
- Dikta
- Fall Out Boy
- Panic At The Disco
- Green Day
- Paramore
- Evanescence
- Muse
- 30 Seconds To Mars
- Linkin Park
- Breaking Benjamin
- Three Days Grace
- Skillet
- Red
- Nickelback
- Metallica
- Led Zeppelin
Á morgun ætlum við að klára að finna upplýsingarnar og myndir og ákveða hvernig þetta verður sett upp í bókinni og kaupa möppuna.
Kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 11:15
Vorverkefni 10.bekk
Halló! við erum stelpur í 10.bekk í Réttó og erum að gera lokaverkefni.
Við ætlum að gera bók/möppu um uppáhalds hljómsveitirnar okkar ;)
Í dag hittum við Jón Svan og töluðum við hann um verkefnið og ákváðum næstum því hvaða hljómsveitir eiga að fara í bókina. Svo gerðum við bara þessa síðu og ætlum bara að fara að ákveða hvernig við ætlum að gera þetta.
kv. Svava og Steinunn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)